Thursday, September 29, 2011

Sokkadans




Wednesday, September 28, 2011

Hlaupandi hress




Hér er hann búinn að hlaupa fram og tilbaka í örugglega hálftíma, með smá pásum að hoppa í sófunum auðvitað. Hann var orðinn svolítið sveittur, svo hann fékk að halda áfram bara á samfellunni....

Hilmar og matarævintýrin




Bláber eru aðalmálið. Ef ekki eru egg á borðum, ÞÁ er hann spenntur. NammNamm hrópar hann og gefst ekki upp fyrr en öll egg eru búin. Pabbinn orðinn frekar matsár á eggin, og sennilega farinn að skipuleggja að fela þau annarstaðar meðan á máltíð stendur svo unginn borði þau ekki frá honum.

En svo er líka hægt að kremja allskonar í eggjaskeranum. Nýjasta er svo að hann spilar líka á eggjaskerann fín lög fyrir mömmu sína, það þarf ekki nema eitt djók og hann gleymir því aldrei.
Myndband frá því í sumar samt, en bara krúttlegt.

Friday, June 24, 2011

Afmælisdansinn



Ég var að finna þetta litla vídjó. Afmælisdrengurinn fílar greinilega tónlistina hjá Erlu nágranna og dillir sér í takt. Afmælisveislan rétt að hefjast og hann í sínu fínasta pússi. Reyndar rifinn úr því og settur í sumarlegri galla en þetta var frábær dagur.

Símatími...

Oddrún gisti hjá okkur og hann var ógurlega hrifinn af því að finna hana í bóli inn í litla herberginu. Við sátum og fengum okkur morgunmat og þá stakk hann af og henti sér upp í rúm að kúra. Honum til mikillar ánægju fann hann símann hennar. Töfragræjur miklar, og hann er löngu búinn að læra að manúvera snertiskjáinn á símanum mínum og er mjög pro þar sem hann heldur símanum upp að eyranu meðan hann hleypur um og talar mikið.

Takið eftir því í lok vídjósins, þá lýsist síminn upp og honum verður agalega mikið niðri fyrir. Hægt rennur upp fyrir mömmunni að hann er að hringja eitthvað, og finnst einsog að mörgum á kontaklista litlu systur muni finnast miður gaman að fá upphringingu frá barni klukkan sjö.... Og stekk því á hann og kippi af honum símanum. Það vill svo skemmtilega til að hann hringdi bara í mig, og vakti því bara pabba sinn í næsta herbergi sem fannst við lítið fyndin og trúði því tæplega að þetta væri óvart.

Thursday, June 23, 2011

Hilmar hjálpar til við þrifin


Ryksugan hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi. Stundum hefur hann verið pínu hræddur, þegar honum tekst að kveikja á henni óvænt og stekkur hæð sína og felur sig bak við eitthvað. Nú þykist hann orðinn öflugur og vill fá að stjórna græjunni sjalfur. Okkur finnst það ljómandi að hann er svona iðinn við að ryksuga og sópa, og hann má alveg halda því áfram....

Saturday, April 30, 2011

Heilsárs!



Það er eitthvað hálfótrúlegt að heilt ár sé liðið frá því að þessi litli gaur spratt í heiminn, krumpaður með titrandi vör. Í gær héldum við veislu honum til heiðurs, og á einhvern undarlegan máta var næstum eins og hann væri meðvitaður um að dagurinn væri helgaður honum, að allt þetta fólk væri í heimsókn til að fagna honum; drengurinn, sem allajafna rífur allt sem ekki er bundið fast við höfuðið á honum samstundis af sér, leyfði þessari glæsilegu flaueliskórónu að sitja tímunum saman, svo áreynslulaust var það raunar að fólk hafði orð á því. Sem er skemmtilegt því við vitum vel að þetta er ekki tilfellið aðra daga.
En hann hljóp og skemmti sér, hamingjusamari en ský í buxum. Kátínan yfir öllu nýja dótinu fór ekki framhjá neinum, og litli kúturinn sem okkur finnst vera nýbúinn að átta sig á því að það virkar ekki að ýta sér bara afturábak (því þá endar maður bara fastur úti í horni) hoppaði og skoppaði um garðinn og elti börnin um í leikjum og gleði.
Þetta var góður dagur og margir góðir gestir.

Það var þó öllu leiðinlegra að föður afmælisbarnsins skuli hafa sést yfir allar myndavélarnar á heimilinu — sem þó eru nokkrar — á jafn afdrifaríkan hátt og raun bar vitni. Einhverjar myndir voru teknar, en alls ekki nóg. Þetta myndskeið er frá morgni afmælisdagsins sjálfs, föstudagsins 29. apríl. Gjöfin er frá ömmu og afa í Markholti.